Töluverðar umræður hafa skapast um verðlag í Costco í einum fjölmennasta Facebook-hópi Íslands, COSTCO- Gleði. Einn meðlimur hópsins, kona að nafni Hulda, setti inn færslu þar sem hún benti á töluverðar verðhækkanir á bláberjum.
„Það er af sem áður var. Ég hef verið fastur áskrifandi að bláberjunum í Costco alveg frá opnun. Þá kostaði kílóið innan við 2 þúsund. Nú hætti ég þessu, því kílóið kostar í Bónus tæpar 2.500 kr. Synd,“ segir konan sem birtir mynd af 510 gramma öskjum sem kostar 1.599 krónur. Kílóið er því á 3.135 krónur.
Nokkrir benda á að berin í Costco séu gæðameiri en berin í Bónus og bragðmeiri sem skýri hærra verð. En Hulda svarar því til að þetta sé sami klassi og áður en allt annað verð.
Einn meðlimur hópsins bendir á koma Costco hingað til lands hafi hagt mjög jákvæðar breytingar í för með sér fyrir íslenska neytendur, burt séð frá því hvort bláber hafi hækkað í verði eða ekki. Aðrar verslanir hafi lækkað verð eftir komu Costco.
Hvetur viðkomandi fólk til að halda áfram að styðja við fyrirtækið. „Ef Costco fær ekki viðunandi fjölda viðskiptavina þá hverfa þeir á braut og allt fellur í sama farið.“
Hulda segir að allir hafi orðið varir við lækkanir í íslenskum verslunum þegar Costco kom. „Nú hef ég áhyggjur af hækkunum þar,“ segir hún og virðast margir taka undir færsluna. „Allt hefur hækkað svo mikið í Costco,“ segir til dæmis kona að nafni Þórunn.
Einn bendir á að fleira en berin hafi hækkað í Costco. Þannig hafi verið hægt að fá garðkofa á 86 þúsund krónur en síðan þá hafi verðið tvöfaldast og höggvi nú nærri 200 þúsund krónum.