„Þá er kominn nýr mánuður og margir geta andað léttar þar sem útborgun frá TR og lífeyrissjóðum hefur skilað sér inn á reikninginn hjá flestum“ segir í pistli sem Hulda Björnsdóttir skrifar á Facebook-síðuna Milli lífs og dauða.
Hulda hefur á undanförnum árum látið sig mál lífeyris- og örorkubótaþega varða og skrifað um þau á umrædda Facebook-síðu síðu.
Í pistli sem birtist á síðunni í gær gagnrýnir hún til dæmis Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra sem hafi talað glatt um hækkun bóta almannatrygginga frá 1. júní 2022, en nýr mánuður gekk í garð í gær eins og flestir vita.
„Núna er ellilífeyrir krónur 278.271 og verður eftir 3% hækkun 286.619
Þetta eru auðvitað alveg gígantískar tölur og ætti ég að halda mér saman og ekki að hafa neina skoðun á þessu máli,“ segir hún meðal annars.
„Ellilífeyrir hækkar um 3% og það gerir brúttó krónur 8.348. Athugið að þetta er brúttótala!
Ekki fær fólk þessar 8 þúsund rúmar því strax er tekið af vegna skerðinga og skatta svo eftir verður harla lítið ef fólk er svo heppið að hafa greitt í Lífeyrissjóði,“ segir hún og spyr hvort Tryggingastofnun sé ekki stofnun sem fylgir fyrirmælum frá ráðherrum.
„Það er ekki TR sem stýrir upphæðum bóta almannatrygginga kerfis á Íslandi.
Það eru ráðamenn hverju sinni. Þeir sem kjósendur kjósa til þess að gæta hagsmuna þjóðarinnar! Enginn sem ekki fær atkvæði kjósenda kemst til valda, eða er það ekki?
Kannski ekki alveg rétt því bitlingarnir eru vænir fyrir skyldmenni og bestu vini BB og co.,“ segir hún og heldur áfram:
„Í dag er ég reið. Ég er ekki vonsvikin, ég er einfaldlega öskureið. Það geisar óðaverðbólga á Íslandi og tekjur þeirra sem ekki vaða í peningum elítunnar, duga skemur fyrir brýnustu lífsnauðsynjum. Þeir ríku maka krókinn eins og venjulega og verða ríkari og þeir fátæku verða fátækari því það eru jú þeir sem halda uppi sukkinu fyrir aðalinn með skerðingum og sköttum. Veit fólk þetta ekki? Skilur fólk þetta ekki? Er fólki alveg sama?“
Pistil Huldu má lesa í heild sinni hér.