Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson er margt til lista lagt og deilir hann þeirri áhugaverðu staðreynd með fylgjendum sínum á Twitter að í dag er þjóðhátíðardagur Bahama eyja.
„Hugur minn er hjá öllum hnyttnu útvarpsmönnum landsins sem missa af dauðafæri,“ skrifar sagnfræðingurinn glettinn.
Hann hefur tístið ekki lengra enda hafa langflestir fattað þegar hér er komið við sögu að Stefán á við frægasta lag tónlistarmannsins Ingós Veðurguðs, Bahama.
Ekki fylgir sögunni hvort að hætt hafi verið að spila lög hans á útvarpsstöðvunum, en Stefán virðist gefa sér það. Hætt var að spila lög með tónlistarmanninum Auði eftir að fluttar voru fréttir af ásökunum á hendur hans.
Í dag er þjóðhátíðardagur Bahama. Hugur minn er hjá öllum hnyttnu útvarpsmönnum landsins sem missa nú af dauðafæri.
— Stefán Pálsson (@Stebbip) July 10, 2021