Hugsan­leg endur­koma Sól­veigar Önnu sögð valda ótta

Há­værir orð­rómar eru um það innan verka­lýðs­hreyfingarinnar að Sól­veig Anna Jóns­dóttir, sem lét af starfi formanns Eflingar á síðari hluta síðasta árs, ætli að bjóða sig fram gegn A-lista Eflingar í for­manns­kjöri verka­lýðs­fé­lagsins.

Frá þessu greinir Vísir. Þar segir að þetta valdi titringi á skrif­stofu Eflingar þar sem enn hafi ekki gróið um heilt milli Sól­veigar Önnu og starfs­fólks þar eftir at­burða­rás sem endaði með af­sögn Sól­veigar og banda­manns hennar Viðars Þor­steins­sonar sem gegndi starfi fram­kvæmda­stjóra. Gert er ráð fyrir að hann hyggi á endur­komu sömu­leiðis í slag­togi við Sól­veigu Önnu.

Hann vildi hins vegar ekkert tjá sig um málið er Vísir náði á hann.

Því má sterk­lega gera ráð fyrir að fram undan sé hörð bar­átta innan Eflingar um efstu stöður innan verka­lýðs­fé­lagsins.