Útvarpsmaðurinn Jón Axel Ólafsson varpaði fram athyglisverðri hugmynd í Facebook-hópinn Bakland ferðaþjónustunnar í gærkvöldi. Eins og flestir vita ríkir algjört frost í ferðaþjónustunni vegna COVID-19 farsóttarinnar.
Jón Axel velti því upp hvort ekki væri hægt að setja kraft í innviði og uppbyggingu meðan hlutirnir eru í lægð. Hugmynd Jóns Axels snýst um það að Íslendingar taki höndum saman og lagi það sem þarf að laga áður en næsta ferðamannaalda skellur á.
Jón Axel segir:
„Hefur engum dottið í hug að setja kraft í innviði og uppbyggingu á meðan hlutirnir eru lægð? Ríkið greiðir 33.000 starfsmönnum okkar til að vera heima. Notum tækifærið og tökum höndum saman, förum öll sem eitt og ásamt starfsfólkinu okkar og tökum til, lögum það sem gefið hefur eftir og byggjum upp þar sem það á við. Fólkið er til staðar, fjármagnið er til staðar og 33.000 manns geta gert mikið á stuttum tíma - þó við þurfum að halda 2ja metra fjarlægð.“
Jón Axel segir að með þessu væri hægt að gefa gestum okkar fallegra og hreinna umhverfi en nokkru sinni fyrr.
„Það myndi auka á sérstöðu okkar og samkeppnishæfni. Bíðum ekki eftir svari um hvað landið/ríkið geti gert fyrir okkur - spyrjum hvað við getum gert fyrir landið okkar! Við erum ríkið, gleymum því ekki.“
Hugmynd Jóns Axels hefur fengið góðan hljómgrunn í hópnum og hafa um 450 manns sett „læk“ á færsluna þegar þetta er skrifað. Þá eru margir sem taka undir með Jóni Axel og finnst hugmyndin frábær. „Brilljant hugmynd,“ segir til að mynda einn.