Hug­leikur segir hættuna á fé­lags­legu sjálfs­morði alltaf til staðar: „Hluti af því að gera svona grín“

Hug­leikur Dags­son einn færasti grín­isti okkar Ís­lendinga heldur sína fyrstu uppi­stands­sýningu á ís­lensku í langan tíma á Húrra í kvöld.

Hann mætti í morgun­þáttinn Ís­land vaknar í morgun og sagði það væri rosa­lega skrýtið að fara flytja efni á ís­lensku sem hann væri búin að flytja áður á ensku. „Auð­vitað veit ég hvernig ég á að segja þessa hluti á ís­lensku en ég er í al­vöru með svona kvíða um að ég muni gleyma hvernig sumt er sagt á ís­lensku,“ segir Hug­leikur á K100.

„Það er hluti af því að gera svona grín. Þú ert alltaf að hætta á fé­lags­legt sjálfs­morð. Vegna þess að það að fara á svið og vera fyndinn er rosa­lega gaman og ein að skemmti­legustu til­finningum í heimi en að fara á svið og verða ekki fyndinn – þá ertu að upp­lifa mann­lega eymd í sinni hreinustu mynd,“ sagði Hugleikur en orð hans glæddu þáttastjórnendur sem hlógu hátt. Sem betur fer, gengi allt vel í 98% til­vika bætti Hugleikur þó við.

Hann segist spyrja sjálfan sig i hvert skipti „af hverju í and­skotanum er ég að þessu“ áður en hann fer á svið.

Hægt er að hlusta við­talið hér.