Huglægt mat réði mestu í vali á erlendu auglýsingastofunni

Þrjúhundruð milljónir til að vinna markaðsátak stjórnvalda „Ísland - Saman í sókn“ fara til alþjóðlegrar auglýsingastofu, M&C Saatchi sem vinnur í samvinnu við íslensku auglýsingastofuna Peel sem er ein sú minnsta á landinu.

Verkið var boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu en það er gagnrýnt að á meðan stjórnvöld og atvinnulíf blása sameiginlega til átaksins „Íslenskt gjörið svo vel“ – til efla íslenskt atvinnulíf - þá skuli um leið markaðsátakið ekki vera í höndum íslenskra fyrirtækja – heldur störfin flutt út, í það minnsta að einhverjum hluta.

Af 100 punktum fékk M&C Saatchi 87,17 punkta en íslenska auglýsingastofan Pipar/TBWA 86,35. Munurinn er 0.82 stig sem Guðmundur Pálsson, formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA) og framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Pipar/TBWA segir í viðtali í þættinum 21 að það þýði að um sambærileg verkefni sé að ræða.

Pipar/TBWA sem tók ásamt fjórtán öðrum þátt í þessu útboði. Mest fór fram huglægt mat þrettán manna dómnefndarinnar segir Guðmundur

„Þetta er huglægt mat. Tíu prósent af þessu er verð og svo svör við þurfum að svara um strategíu og um hugmyndina og hvernig hún virkar í öllum miðlum og ýmislegt annað og þetta voru sex flokkar sem var dæmt eftir ásamt fimm flokkum í verði og hugmyndin, eða þessi sex flokkar giltu 90 prósent“.

Dómnefndin segir Guðmundur hafa verið vel valin fólki með þekkingu á þesu sviði en svo naumur munur á milli tilboða veki upp ágengar spurningar um niðurstöðuna:

„Þegar munar rúmlega 0.82 prósentum þá eru hugmyndirnar sambærilegar. Þetta er í raun og veru grátlegt finnst okkur að þetta muni þá fara út úr landi þar sem þetta verkefni snýst um að vinna saman“, segir Guðmundur.

Hann segir íslenskt fagfólk, verði með þessu af því tækifæri að auka færni sína í alþjóðaverkefni af þessari stærðargráðu.

„Þetta er risastórt verkefni á íslenskan mælikverða, þannig verkefni að það sé verið að markaðsetja Ísland á alþjóðamarkaði, við það að vinna svona verkefni, bæði strategíuna, hugmyndina, vinna efnið og koma síðan í birtingu þá byggir þú upp þekkingu hér á Íslandi. Íslendingar þurfi á slíkri sérfræðiþekkingu að halda í meiri mæli, til að markaðssetja íslenskar vörur og íslenskt hugvit erlendis. Það hafi verið gert með góðum árangri en það sé slæmt að við höldum þá ekki áfram að byggja upp það góða starf með aukinni þekkingu.

M&C Saatchi Ltd hafa sagst munu vinna sín verkefni mikið til á Íslandi og er í samstarfi við íslensku auglýsingastofuna Peel. Guðmundur segir að verkefnið sé þó í höndum erlend stofunnar:

„M&C Saatchi verða leiðandi, það eru þeir sem unnu útboðið og stýra verkefninu“, áréttar Guðmundur.

„En aðal málið er og stóra málið er strategían og hugmyndavinnan og það allt sem við erum að senda úr landi“.

Reglur um mat á verkefnum segja til um að ekki megi mismuna tilboðshöfum á grundvelli þjóðernis. Guðmundur segir slíkt ekki heldur vera kostur í þeirra huga heldur þurfi að skoða betur M&C Saatchi Ltd og viðskiptasögu þess.

Frestur til að kæra ákvörðun nefndarinnar eru nú tíu dagar og segir Guðmundur nú sé verið að meta hvort þessu verði áfrýjað.

„Það hafa komið upp nokkur atriði sem við erum að skoða. Annars vegar hefur komið í ljós sem að við vissum ekki af og það var bara kynnt í fjölmiðlum daginn eftir niðurstöðuna að Saatchi er undir rannsókn hjá Fjármálaeftirlitinu í Bretlandi“

„Mér skilst eftir að hafa skoðað þessar greinar að þarna hafi þeir verið í stórfelldu skattsviki upp á tvo milljarða. Þessir aðilar sem tóku þátt í því, þessir toppar búnir að segja af sér en ennþá að mér skilst í rannsókn en ekki komin niðurstaða í það“, útskýrir Guðmundur og að í útboðinu hafi verið matsþáttur um hvort þú hefðir staðið skil á sköttum eða tengdur einhverjum svikum“

„Þú getur ímyndað þér ef þetta hefði verið einhver íslensk stofa, við vitum hvernig þetta var í bankahruninu“, bætir hann við.

Dómnefndin var skipuð 14 manns frá Ferðamálaráðuneytinu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Reykjavíkurborg, Markaðsstofum landshlutanna og Íslandsstofu sem mun verða kaupandi verksins.