Hugi kannar stemninguna fyrir sér­stökum þætti

Hlað­varps­þátta­stjórnandinn Hugi Hall­dórs­son kastar út önglinum á sam­fé­lags­miðlinum Twitter, þar sem hann kannar stemninguna fyrir sér­stökum hlað­varps­þætti um 70 mínútur.

Þættirnir voru þeir lang­vin­sælustu í ís­lensku sjón­varpi þar sem þeir voru sýndir á sjón­varps­stöðinni PoppTí­ví árin 2000 til 2007.

Dag­skrár­liðarnir hafa fyrir löngu öðlast mikla frægð og mætti þar helst nefna ó­geðis­drykkinn, falda mynda­vél og fríkað úti eins og upp­á­tæki þeirra Sveppa, Audda, Simma, Jóa, Huga og Péturs Jóhanns í út­löndum voru kölluð.

„Er rauð­vínið mitt svona gott eða er stemmning fyrir 70min special pod­casti ? #whyt­hehell­not“ skrifar Hugi í gær­kvöldi og fær miklar undir­tektir. Rúm­lega átta­tíu manns hafa brugðist við færslunni, sem telst mikið á Twitter mæli­kvarða.

Hugi ætti ekki að eiga erfitt með skipu­lagninguna en sjálfur stýrir hann fót­bolta­hlað­varps­þættinum Fanta­syGandalf. Þá stýrir Auðunn Blön­dal vin­sælasta út­varps­þætti landsins, FM95Blö, svo þeim fé­lagar ætti að reynast verkið létt í hendi.

Hér að neðan má horfa á nokkrar vel valdar klippur úr þáttunum sem hlaðið hefur verið upp á YouTube: