Hryllingur í Hafnarfirði: Réðst á pabba sinn og sló hann með hnúajárni

Maður var í síðustu viku dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að ráðast á föður sinn.

Árásin átti sér stað á heimili foreldra mannsins í Hafnarfirði, en hann rést á föður sinn, sló hann fimm til sex sinnum í andlitið með hnefa útbúið hnúajárni.

Faðirinn hlaut fyrir vikið 3,5 sentimetra hálfmánalaga skurð á vinstra kinnbeini, 7x5 sentimatra mar þar í kring og þreifieymsli á því svæði, 2x2 sentimetra bólgu og mar við enda vinstri augabrúnar og mar undir vinstra auga,margar kúlur í hársverði og 7x5 sentimetra mar við enda hárlínu vinstra megin aftan á hálsi.“

Maðurinn játaði sök og ekki þótti ástæða til að draga hana í efa. Hann var þar að auki sakfelldur fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot.