Hryllingshús í Kópavogi: Nágrannar áhyggjufullir - „Þetta er bara búin að vera skelfileg staða“

„Við höfum rætt þetta við lög­fræðinga og erum mjög hrædd um að þetta muni lenda á okkur,“ segir Andrej Hol­bicka í sam­tali við Frétta­blaðið í dag.

Andrej er eig­andi par­húss að Skóla­gerði 49 á Kárs­nesi í Kópa­vogi en Frétta­blaðið greindi frá því í gær að húsið við hliðina á væri komið á sölu. Það sem vakti einna mesta at­hygli var sölu­lýsing hússins en þar kom fram að skoða þyrfti eignina með fag­aðilum í við­eig­andi klæðnaði af heilsu­fars­á­stæðum.

Eignin er mjög illa farin sökum raka­skemmda og myglu og þarfnast al­gjörar endur­nýjunar að innan sem utan. Ljóst er að það mun kosta tug­milljónir króna að koma húsinu í topp­stand. Seljandi er dánar­bú sem eignaðist húsið í skulda­skilum, að því er segir í frétt Frétta­blaðsins.

Andrej er sem fyrr segir eig­andi Skóla­gerðis 49 og hafa hann og hans fjöl­skylda sinnt sínum hluta vel eins og með­fylgjandi mynd ber með sér. Andrej óttast að þurfa að taka þátt í kostnaðinum þegar nýr eig­andi fer í endur­bætur.

Andrej segir að ís­lensk lög séu frá­brugðin lögum úti í Evrópu og hann hafi ekki haft hug­mynd um að þurfa að taka þátt í hugsan­legum kostnaði vegna fram­kvæmda þegar hann keypti húsið. Gamli eig­andinn hafi ekki sinnt neinu við­haldi undan­farin 40 ár eða svo.

Andrej gagn­rýnir meðal annars Kópa­vogs­bæ fyrir að sýna málinu lítinn á­huga en ekkert verið gert. „Þetta er bara búin að vera skelfileg staða,“ segir hann. Hann óttast að nýr eig­andi muni einn daginn banka upp á og rukka þau fyrir við­gerðar­kostnað hússins. „Það gæti gerst. Og yrði mjög ó­sann­gjarnt,“ segir hann við Frétta­blaðið.

Mynd/Miðborg
Fréttablaðið/Sigtryggur Ari