Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá báðum köflum er lúta að hryðjuverkum í hryðjuverkamálinu svokallaða. Þetta kemur fram í frétt Vísis.
Dómari ákvað að vísa öllu frá sem lítur að hryðjuverkum, tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í tilraun til hryðjuverka frá dóminum.
Tveir menn eru ákærðir í málinu, Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson.
Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra Snæs, segir í samtali við Vísi að hann sé ánægður með niðurstöðuna sem er í samræmi við væntingar þeirra.
„Ákæruvaldið getur auðvitað kært þetta til Landsréttar, þeir gætu líka ákveðið að gefa út nýja ákæru sem lýtur að þessu. Svo gætu þeir bara ákveðið að láta kyrrt liggja og klára þá bara vopnalagabrotin, sem eru auðvitað minniháttarbrot í samanburði við hryðjuverkabrotin.“
„Ég held að það megi líta á þetta jákvætt, að þetta sé lærdómur. Þetta er lærdómur fyrir lögreglu og ákæruvaldið. Þeir geta horft aðeins inn á við og metið það hvernig þeir geta bætt sín vinnubrögð ef og þegar svipuð aðstaða kæmi upp. Fara þá rólega af stað, fylgjast með hugsanlegum brotamönnum í einhvern tíma og rannsaka þá áfram,“ segir Sveinn Andri.
Hann segir lögregluna hafa verið of bráðláta.