Hrós dagsins fá Örvar Þór Guðmundsson og góðgerðasamtökin Samferða sem komu einstæðri móður heldur betur til hjálpar í vikunni.
Örvar Þór er í stjórn samtakanna en að þeim koma einnig knattspyrnukempurnar Hermann Hreiðarsson og Rútur Snorrason.
Örvar sagði frá því á Facebook að hann hefði fengið veður af ungri konu með tvö lítil börn sem hefði einungis 17 þúsund krónur á milli handanna til að lifa af seinni hluta aprílmánaðar. Á Íslandi kemst maður því miður ekki langt fyrir slíka upphæð, hvað þá með tvö ung börn. Konan missti manninn sinn árið 2019 og var í vanda stödd.
Örvar lét vanda konunnar ekki sem vind um eyru þjóta heldur hélt af stað og hafði samband við fjölda fyrirtækja sem lögðu sitt af mörkum. Pro Optik í Kringlunni gaf öðru barni konunnar vönduð gleraugu sem kosta 60 þúsund krónur. Fataverslun gaf móðurinni boli, sokka, nærföt og skó fyrir börnin og sig líka. Cintamani gaf fjölskyldunni vetrarföt fyrir bæði börnin og móðurinni úlpu.
Óhætt er að segja að þessi frásögn hafi snert við mörgum og rigndi fallegum kveðjum yfir Örvar. Í Facebook-hópnum Hrós dagsins fékk Örvar mikið hrós. „Mikið er þetta fallegt og göfugt framtak,“ segir einn notandi hópsins á meðan annar bætir við: „Þú ert með fallegt hjarta á hárréttum stað.“
Frásögn Örvars má lesa í heild sinni hér að neðan:
Við hjá Samferða fengum ábendingu á þriðjudagskvöldið. Þessi ábending snerti okkur mikið. Um var að ræða unga móðir með tvö lítil börn. Maðurinn hennar lést árið 2019. Hún átti til 17.000 krónur til að lifa síðustu 15 dagana í apríl. Það sem meira er, sonur hennar 4 ára er með mikla sjónskekkju og var nýbúinn að brjóta óvart ódýr gleraugu sem hann átti.
Þar sem ég átti lausa stund í gær þá ákvað ég að fara óhefðbundnar leiðir á þessum skrítnu tímum sem heimurinn býr við. Setti mig í samband við þessa fjölskyldu og við mældum okkur mót í Prooptik, sem er gleraugnaverslun í Kringlunni. Ræddi við yfirmann í þeirra verslun og útskýrði stöðu mála. Það stóð ekki á þeirri verslun. Verslunin gaf barninu vönduðustu gleraugun í búðinni sem eru óbrjótanleg og kosta um 60.000 krónur.
Því var næst farið í fataverslun í Kringlunni. Þar fékk móðir að versla boli, sokka, nærföt og skó fyrir börnin og fyrir sig líka.
Þá var þessu ekki lokið. Ég hafði samband við framkvæmdarstjóra hjá Cintamani. Eftir að hafa útskýrt fyrir honum stöðu mála þá stóð ekki á þeim heldur. Áttum að koma strax í verslun þeirra inní Garðabæ. Þar tók hann á móti okkur með sumar og vetrarföt á bæði börnin hennar ásamt úlpu á móðir. Pakki uppá 250.000 krónur.
Ég kvaddi svo móðir (sem var tárvot úr gleði) og börnin hennar. Ekki með faðmlagi (þar sem við hlýðum Víði og virðum 2 metra regluna) heldur hlýlegu brosi. Lét hana vita áður en hún settist inní bíl sinn að hún ætti ekki lengur 17 þúsund krónur inná debetkorti sínu heldur 100.000 krónur. Hún á því til pening fyrir mat fyrir sig og börnin út þennan apríl mánuð og getur mögulega gert eitthvað skemmtilegt fyrir börnin sín líka.
Við hjá Samferða viljum þakka aftur Prooptik og Cintamani fyrir ótrúlega góðvild.
Mamman sendi mér svo þennan póst áðan:
„Sæll Örvar
Mig langaði að þakka þér innilega fyrir allt sem þú gerðir fyrir litlu fjölskylduna mína í gær. Gleðin hjá krökkunum er ólýsanleg. Allt sem þau fengu voru hlutir sem ég hef þurft að láta sitja á hakanum þrátt fyrir að það vantaði nauðsynlega. Fór líka í gær og verslaði stígvél á þau bæði.
Langaði líka að segja þér frá samtali milli mín og sonar míns í gærkvöldi. Hann sagði mér að hann væri alveg viss um að þú værir vinur guðs. Því hann var sko búinn að biðja guð að fá svona úlpu (svarta með loðkraga). Hann er búinn að biðja um svona úlpu í marga mánuði en ég hef ekki haft efni á henni. Svo spurði hann mig hvort ég gæti ekki beðið þig að skila til pabba að hann elskaði hann og saknaði hans. Því jú hann er alveg viss um að þú ert góðvinur guðs þannig þetta var svo sjálfsagt í hans unga huga.
Ég held að ég geti aldrei komið almennilega í orð þakklætinu sem ég finn fyrir. Og hversu ótrúlega mikil hjálp þetta var. Takk fyrir okkur og takk fyrir gleðina sem ríkir hjá mínum börnum núna “.
Í flestum tilvikum síðustu ár höfum við hjá Samferða góðgerðarsamtökum verið að styrkja þá allra veikustu hér á landi. Alltaf er um að ræða fjárstyrk. Oft er þetta fólk sem er að berjast við krabbamein. Bara á síðustu 14 mánuðum eru 11 einstaklingar látnir sem við höfum verið að styrkja. Fólk á aldrinum 25-70 ára. Yndisleg kona sem við höfum styrkt mikið síðustu ár tapaði sinni baráttu á mánudagskvöldið og kvaddi okkar jarðvist – góða ferð elsku Begga.
Ég líkt og Martin Luther King á mér draum. Ef allir Íslendingar myndu deila þessum status og styrkja okkar samtök um 500 krónur í dag eða á næstu mánuðum þá getum við auðveldlega haldið okkar starfi áfram næstu 10 árin í það minnsta. Getum hjálpað mörghundruð fjölskyldum á hverju ári. Það þarf ekki meira til. Bara 500 kall. Ertu til í það?
Bankaupplýsingar Samferða:
Banki 0327-26-114
Kt. 651116-2870
Einnig er hægt að hringja í 900 númer Samferða:
907-1081 – gefur 1000 krónur
907-1083 – gefur 3000 krónur
907-1085 – gefur 5000 krónur
907-1090 – gefur 10000 krónur
Eins og alltaf þá gefum við öll í stjórn Samferða okkar vinnu. Eins er enginn kostnaður. Sökum þess gefum við alltaf allt sem safnast.
Ef þú lumar ábendingu eða ert með spurningu þá er hægt að senda okkur skilaboð inná Facebook síðu Samferða:
https://www.facebook.com/samferdafoundation/?eid=ARCNu_W1fjq72W9fGagUT0YAgMcvsYIEqVBSv_zOV39NqO3bjdyvygGhbLODkrrGqHabjAVxKHb55Tzf
Áfram ÍSLAND...!!!