Hrós dagsins að þessu sinni birti útvarpsmaðurinn Heimir Karlsson á Facebook fyrr í dag. Heimir er einn af umsjónarmönnum morgunþáttarins Bítið á Bylgjunni sem hann hefur stýrt í fjölda ára.
Heimir skrifaði lítið en skemmtilegt innlegg í Facebook-hópinn Hrós dagsins í dag. Svo virðist vera sem hann hafi verið á ferðinni í Hafnarfirði þegar hann ók fram á barnahóp í Setberginu.
„Hrós dagsins fá börnin í Setberginu í Hafnarfirði fyrir að þakka einstaklega fallega fyrir sig þegar maður stöðvar bílinn við gangbrautina til að hleypa þeim yfir. Veifa lengi til manns, brosandi og kurteis. Frábært. Til hamingju Hafnarfjörður með unga fólkið í Firðinum:)“