Hrós dagsins: Göngu­skórnir gáfu sig en þá kom Viktor til bjargar

„Um síðustu helgi lenti göngu­maður á Lauga­veginum í því að göngu­skórnir hans gáfu sig, sólarnir hrein­lega duttu undan báðum skónum.“

Svona hefst skemmti­leg færsla sem birtist í morgun á Face­book-síðu Fjalla­kofans. Þar segir að um­ræddur göngu­maður hafi verið strandaður skó­laus við Álfta­vatn. Á þessum tíma­punkti voru góð ráð dýr því það er ekki beint auð­velt að ganga á sóla­lausum skóm í Þórs­mörk.

Úr varð að maðurinn talaði við skála­verði í Hvann­gili sem bentu honum á að hringja í Fjalla­kofann. Í færslunni segir að það hafi hitt svo vel á að starfs­maður Fjalla­kofans, Viktor Einar, var á leið í Hvann­gil um kvöldið.

„Viktor tók með nýja Scarpa Zodiac göngu­skó fyrir göngu­manninn og á laugar­dags­morgun hjólaði hann frá Hvann­gili í Álfta­vatn með skóna og af­henti þá. Göngu­maðurinn var í góðum málum og gat haldið ferð sinni í Þórs­mörk á­fram. Það er alltaf gaman að geta veitt góða þjónustu,“ segir í færslu Fjallakofans.

Vandræði á fjöllum Um síðustu helgi lenti göngumaður á Laugaveginum í því að gönguskórnir hans gáfu sig, sólarnir...

Posted by Fjallakofinn on Þriðjudagur, 25. ágúst 2020