Hrönn hættir og birtir uppsagnarbréfið: „Að gera mitt besta í ómögulegum aðstæðum nægir ekki“

„Með því að birta bréfið opinberlega vonast eg til að vekja athygli á ástandinu og að ráðamenn bregðist við,“ segir Hrönn Guðbjartsdóttir hjúkrunarfræðingur. Hrönn vann sína síðustu vakt á Bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi (BMT) á laugardag.

Fréttablaðið fjallar um þetta.

Hrönn segist hafa ákveðið að hætta vegna gríðarlegs álags á deildinni, en hún birti uppsagnarbréf sitt á Facebook um helgina og vakti það talsverða athygli. Kveðst hún vonast til þess að opna augu ráðamanna þjóðarinnar með birtingu bréfsins.

„Hér með segi ég upp starfi mínu sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttökunni. Ástæða uppsagnarinnar er að ég tel mig, vegna álags á deildinni, ekki geta tryggt öryggi þeirra sjúklinga sem ég er ábyrg fyrir hverju sinni,“ segir hún í bréfi sínu.

Í samtali við Fréttablaðið kveðst Hrönn hafa unnið á bráðamóttökunni í fimm mánuði. Hún hefur áður starfað á bráðamóttöku í Svíþjóð og segist helst af öllu hafa viljað vera áfram í bráðahjúkrun. Aðstæður í Fossvoginum koma hins vegar í veg fyrir það.

„Ég sé mér ekki annað fært en að hætta störfum á BMT þar sem ég vil ekki vera á­byrg fyrir manns­lífum þegar ég hef ekki mögu­leika á að gera það sem þarf fyrir mína sjúk­linga. Að gera mitt besta í ó­mögu­legum að­stæðum nægir ekki,“ segir hún.

Nánar á vef Fréttablaðsins.