Hrönn dauðþreytt á hávaðanum á Vatnsstíg: „Þetta er bara ömurlegt“

Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíós Paradísar, er orðin langþreytt á hávaða sem kemur frá framkvæmdareit á Vatnsstíg í Reykjavík. Hrönn er ekki eini rekstraraðilinn á svæðinu sem er orðinn þreyttur á hávaðanum eins og fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Stórvirkur höggbor hefur verið notaður til að grafa fyrir bílakjallara á lóðinni. Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að framkvæmdir með bornum hafi átt að taka 8 til 10 daga en síðan þá eru liðnir þrír mánuðir og enn er borað.

„Þetta er bara ömurlegt,“ segir Hrönn í samtali við Morgunblaðið og bætir við að Bíó Paradís hafi þurft að fresta skólasýningum vegna hávaða. Hún segir að verktakinn á svæðinu, Leiguíbúðir ehf., hafi reynt að koma til móts við rekstraraðila með því að bora á fyrir fram ákveðnum tímum.

„Þetta er heilmikið tekjutap og það virðist enginn bera ábyrgð. Byggingafulltrúi segir bara að þetta sé leyfilegt og að það sé ekkert sem hægt sé að gera,“ segir hún meðal annars.