„Um árabil hefur skiptistöðin í Mjódd verið vísvitandi vanrækt af borgaryfirvöldum. Skiptistöðin er önnur fjölfarnasta umferðarmiðstöð landsins en um fjórar milljónir farþega fara árlega um hana. Vanræksla svo mikilvægrar stöðvar beinist ekki bara að henni heldur strætókerfinu í heild.“
Þetta segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þar gagnrýnir hann harðlega stöðu mála á skiptistöðinni í Mjóddinni.
„Miðpunktur skiptistöðvarinnar er upphitaður biðsalur þar sem farþegar geta hlýjað sér í skjóli fyrir veðri og vindum. Umhirðu og eftirliti með salnum, sem og salernisþrifum, er stórlega ábótavant. Salurinn er kuldalegur og húsbúnaður fátæklegur. Samt er betra að bíða eftir strætó í salnum en úti í kulda og trekki,“ segir Kjartan en tekur fram að málið sé ekki svo einfalt.
„Klukkan 18 á kvöldin er biðsalnum lokað og farþegum vísað út. Skilgreindur annatími Strætó er frá kl. 16-19. Þessi lokun bitnar á fjölmörgum farþegum, sem gert er að híma í myrkri, kulda og trekki fyrir utan upphitaða stöðina á kvöldin.“
Kjartan varpar fram þeirri spurningu hvort einhverjum detti í hug að viðskiptavinir annarra fólksflutningafyrirtækja þyrftu að una slíkri framkomu, að farþegum yrði til dæmis vísað út úr BSÍ, Leifsstöð eða flugstöðinni í Reykjavík og þeim gert að bíða úti í kuldanum.
Kjartan segir að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi ítrekað lagt til að gerðar verði umbætur á skiptistöðinni í Mjódd. Í grein sinni tíundar hann þær.
- Opið á kvöldin . Biðstöðin verði opin farþegum á kvöldin á meðan strætisvagnar ganga.
- Gæsla með biðsalnum verði aukin og salernisþrifum komið í lag
- Sætum í biðsal verði fjölgað og þau löguð sem fyrir eru. Biðsalurinn verði gerður hlýlegri, t.d. með uppsetningu listaverka.
Kjartan segir að ofangreind atriði séu svo sjálfsögð þjónusta að varla ætti að þurfa að flytja um þau sérstaka tillögu, hvað þá berjast fyrir þeim árum saman.
„Tillagan var lögð fram á síðasta borgarstjórnarfundi, 3. janúar. Í október sl. hafði samhljóða tillaga verið flutt í umhverfis- og skipulagsráði en frestað af meirihlutanum. Þrátt fyrir að tillagan væri útskýrð og rædd í þaula á borgarstjórnarfundinum treystu borgarfulltrúar meirihlutans sér ekki til að samþykkja hana heldur vísuðu henni til borgarráðs.“
Kjartan segir að mörg ár séu liðin síðan byrjað var að berjast fyrir úrbótumm en 2016 og 2017 lögðu borgarfulltrúar flokksins til að skiptistöðin yrði opin á kvöldin og gerðar frekari úrbætur.
„Þá eins og nú færðust fulltrúar vinstri meirihlutans lengi undan því að taka tillöguna til afgreiðslu. Það tókst þó í júní 2017 og var tillagan þá felld með atkvæðum Samfylkingarinnar og fylgiflokka hennar. Núverandi meirihluti Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar vill ekki samþykkja svo einfalda tillögu þrátt fyrir að málið hafi verið til skoðunar með einum eða öðrum hætti í borgarkerfinu síðan í janúar 2016 eða í sex ár! Slíkt er ótvíræður vitnisburður um arfaslaka verkstjórn og metnaðarleysi í málefnum almenningssamgangna.“
Kjartan segir að farþegar verði því enn um sinn að gera sér að góðu að notast við úr sér gengin húsgögn eða bíða úti í kulda og myrkri á meðan málið hrakhraufast um borgarkerfið án niðurstöðu.
„Meirihlutinn gæti jafnvel skipað stýrihóp til að yfirfara þjónustuhandbók skiptistöðva. Varla er sparnaði um að kenna því undir lok nýliðins árs voru keypt ný hönnunarhúsgögn í skrifstofur borgarfulltrúa þrátt fyrir að þau húsgögn, sem fyrir voru, væru í góðu lagi.“