„Við höfum verið að fá ábendingar um að fólk sem er í einangrun hafi verið að verða fyrir ónæði. Fá símhringingar og skilaboð frá fólki sem finnur sig knúið til að skamma fólk. Við erum ekki hrifin af því,“ segir Rögnvaldur Ólafsson, deildarstjóri hjá Almannavörnum.
Í hádegisfréttum RÚV sagði Rögnvaldur að þess séu dæmi að einstaklingar með COVID-19 hafi orðið fyrir smánun og skömmum eftir að hafa veikst.
„Það er enginn að leika sér að því að veikjast og hvað þá að smita aðra. Allir hafa verið að fylgja þeim leiðbeiningum sem hafa verið í gildi og jafnvel umfram það,“ segir hann og bætir við að þetta sé eitthvað sem enginn vilji sjá. Það geti verið leiðinlegt að sjá að fólk fái þetta ofan í að vera glíma við eigin veikindi.
Fimm smit greindust hér á landi í gær; tvö við landamæraskimun og þrjú hér innanlands. Ekki eru komnar niðurstöður úr mótefnamælingum og eru allir þeir sem greindust jákvæðir nú í einangrun. Nú eru þrettán virk smit á landinu og alls 438 manns í sóttkví.