Hringdi í Hönnu Björg og sagðist vera lögga: „Ég fór aðeins á hliðina“

Óprúttinn aðili hringdi í Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur og þóttist vera rannsóknarlögreglumaður hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vildi viðkomandi boða hana í yfirheyrslu. Kynjafræðingurinn Hanna Björg, sem varð áberandi í haust eftir KSÍ-málið, segir á Facebook að viðkomandi hafi sagt að borist hefði ákæra fyrir meiðyrði.

„Mér þótti símtalið skrítið, viðkomandi var óöruggur og hrokafullur í senn, ég sagði við hann að ef ég sæi ekki að hringt væri frá Lögreglunni (sem kom upp á skjáinn í símanum) þá héldi ég að þetta væri gabb. Maðurinn hélt fast við sitt og sagðist vilja fá mig í yfirheyrslu í næstu viku – á miðvikudaginn um hádegið, en neitaði að segja um hvað málið væri og hver væri að kæra mig,“ segir hún.

„Ég fór aðeins á hliðina verð ég að viðurkenna, samstarfskona mín hringdi í lögfræðing sem hún þekkir og spurðist fyrir hvort þetta gæti staðist, hann setti strax spurningamerki um að lögreglan væri að rannsaka meiðyrðamál og að mér hefði ekki verið tjáð að hafa lögfræðing með.“

Hanna Björg segir að hún sé svo löghlýðin að hún hafi ekki verið reiðubúin að afgreiða málið sem gabb. Fékk hún loks svar frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að þetta hafi verið gabb.

„Einhver hafði sem sagt fyrir því að hringja í mig í gær, með aðstoð tækni, og láta mig trúa því að ég væri með ákæru á hendur mér hjá lögreglunni og yfirvofandi rannsókn væri á mér.

Langt seilst til að þagga niður í konu? Tja – þessi hér spyr sig.“