Hringdi fár­veik og vildi að­stoð: Sagt að halda sig heima - greind með Co­vid-19 eftir að hún lést

„Heil­brigðis­kerfið okkar er gott þegar á heildina er litið, en þarna stóðu þeir sig illa. Þeir sögðu henni að vera heima þó þeir vissu af undir­liggjandi veikindum hennar.“

Þetta segir Tony Karls­son, sonur hinnar 58 ára Ann-Kristine Karls­son sem lést um síðustu helgi. Tony er ó­sáttur við sænsk heil­brigðis­yfir­völd enda var móður hans sagt að vera heima þegar hún hringdi fár­veik og óskaði eftir ráð­leggingum. Það var ekki fyrr en á mánu­dag, rúmum sólar­hring eftir and­lát hennar, að bráða­birgða­krufning leiddi í ljós að hún var með Co­vid-19.

Þrír látnir í 700 manna bæ

Ann-Kristine er þriðji í­búinn í Högsjö, 700 manna smá­bæ rúmum hundrað kíló­metrum vestur af Stokk­hólmi, sem deyr af völdum Co­vid-19. Nokkrum dögum fyrir and­lát hennar lést stjúp­faðir hennar, sem var á ní­ræðis­aldri, einnig af völdum Co­vid-19.

Expres­sen fjallaði um þetta mál í vikunni en í um­fjölluninni kemur fram að Ann-Kristine hafi sinnt stjúp­föður sínum í veikindum hans. Bana­mein hans var lungna­bólga af völdum Co­vid-19.

Var í á­hættu­hópi

Ekki leið á löngu þar til Ann-Kristine fór sjálf að finna fyrir ein­kennum. Hún fékk háan hita, 39 til 40 gráður, í sex daga. Hún hafði áður fengið hjarta­á­fall og glímdi auk þess við lang­vinna lungna­teppu og var af þeim sökum í á­hættu­hópi vegna Co­vid-19. En sænsk heil­brigðis­yfir­völd virðast ekki hafa tekið þessar upp­lýsingar al­var­lega þegar hún hafði sam­band og óskaði eftir ráð­leggingum.

Tony bendir á að móðir hans hafi haft sam­band í upp­lýsinga­númer vegna Co­vid-19 far­aldursins í Sví­þjóð. Í sam­talinu hafi henni verið sagt að halda sig heima og hvílast. Hún hafði aftur sam­band þegar Co­vid-19 smitið var stað­fest hjá tengda­föður hennar, en aftur var henni sagt að halda sig heima.

Fara varla út lengur

Þegar leið að síðustu helgi fór hitinn minnkandi en Ann-Kristine var samt sem áður upp­gefin á líkama og sál og leið ekki vel. Þá á­kvað hún að fara til læknis þar sem á­stand hennar versnaði með hverri klukku­stundinni sem leið. Það var svo að­fara­nótt sunnu­dags að hún lést. Sem fyrr segir var hún ekki greind með Co­vid-19 fyrr en á mánu­dag, rúmum sólar­hring eftir and­látið. Tony er gagn­rýninn á sænska heil­brigðis­kerfið og segir að í til­felli móður hans hafi kerfið brugðist.

Co­vid-19 hefur haft veru­leg á­hrif á þetta litla sænska sam­fé­lag sem telur að­eins um 700 íbúa. Í frétt Afton­bladet, sem greindi fyrst frá málinu, kemur fram að bæjar­búar þekki flestir hver annan. „Hér hafa margir veikst og margir eru á­hyggju­fullir. Eldri í­búar bæjarins fara varla út lengur. Þó að hér séu engar lestar­stöðvar þá hittist fólk mikið og er í nánu sam­bandi,“ segir Tony.

Í frétt Expres­sen er tekið fram að heil­brigðis­yfir­völd geti ekki tjáð sig um mál ein­stakra sjúk­linga og því fáist engar upp­lýsingar um and­lát Ann-Kristine.

Rúm­lega 2.800 stað­fest smit hafa komið upp í Sví­þjóð síðan far­aldurinn hófst. Þar af hafa 696 ein­staklingar verið lagðir inn á sjúkra­hús, 160 hafa verið lagðir inn á gjör­gæslu­deild og 66 hafa látist.