Hringdi 2.283 sinnum í barnsmóður sína þrátt fyrir nálgunarbann

Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekuð brot gegn nálgunarbanni. Var maðurinn ákærður fyrir að setja sig ítrekað í samband við hana með því að hringja í síma hennar og senda henni SMS-skilaboð.

Þann 6. nóvember í fyrra var manninum gert að sæta nálgunarbanni í sex mánuði og var honum meðal annars bannað að koma á eða í námunda við heimili barnsmóður sinnar, nálgast hana á almannafæri, vinnustað hennar eða hafa samskipti við hana í síma, tölvu eða á annan hátt.

Maðurinn lét þetta sem vind um eyru þjóta og var ákærður fyrir að hringja 1.343 símtöl og senda 1.092 SMS-skilaboð úr ákveðnu símanúmeri á tímabilinu 6. nóvember til 8. janúar. Frá 8. janúar til 3. febrúar síðastliðinn notaðist hann við annað símanúmer og hringdi 505 símtöl og sendi 440 SMS-skilaboð til konunnar. Frá 1. febrúar til 16. mars notaðist hann við enn annað númer og hringdi 435 símtöl og sendi 484 SMS-skilaboð.

Samtals hringdi maðurinn 2.283 sinnum og sendi rétt rúmlega 2.000 SMS-skilaboð á umræddu tímabili.

Maðurinn játaði sök fyrir dómi en fyrir dómi var litið til þess að ekki var um hótanir að ræða heldur hafi tilraunir hans til samskipta virst vera í þeim tilgangi að vera í símasamskiptum við 5 ára dóttur sína.

„Loks er til þess að líta að barnsmóðir ákærða virðist umræddu tímabili einnig hafa verið í símasamskiptum við ákærða í allmörg skipti,“ eins og segir í niðurstöðu dómsins. Fangelsisdómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára en með brotum sínum rauf maðurinn skilorðs dóms sem hann hlaut fyrir gripdeild árið 2019.