Hringbraut: Fjöldi áhugaverðra þátta framleiddur í sumar

Sjónvarpsstöðin Hringbraut stendur að framleiðslu fjölda áhugaverðra sjónvarpsþátta í sumar – og sem fyrr er íslenskt efni í forgrunni; menning, saga, mannlíf og náttúra, einatt með forvitnilegu fólki í forgrunni.

Þegar eru sex þættir af þáttaröðinni Bærinn minn að baki þar sem sjarmi og sérstaða nokkurra sveitarfélaga hringinn í kringum Ísland var fangaður – og mæltust þættirnir einstaklega vel fyrir, enda luku þeir upp mörgum leyndum perlum bæja á borð við Akureyri, Blönduós, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Snæfellsbæ og Vestmannaeyjar.

Á næstu dögum hefjast upptökur á tveggja þátta röð um um friðlandið Þórsmörk, en í ár eru einmitt 100 ár liðin frá því bændur á svæðinu gáfu eftir upprekstrarrétt sinn í þágu náttúruverndar, langt á undan sinni samtíð – og skipulögð skógrækt og endurheimt landgæða hófst þar. Þættirnir er unnir í samvinnu við Skógrækt ríkisins og munu hampa einu margbrotnasta náttúrugersemi landsins.

Þá er vinnsla hafin á tveggja þátta röð um sögu Sólheima í Grímsnesi í tilefni af 90 ára sögu samfélagsins í mannvininni eystra – og er þar lögð áhersla á að tengja saman sögu og mannlíf, sjálfbærni og menningu á þessum einstaka stað í uppsveitum Árnessýslu.

Einnig eru í farvatninu fjórir þættir undir heitinu Ungir bændur þar sem fjölbreytt sveitabýli á Íslandi verða sótt heim, öll í forsvari ungs fólks sem er að hasla sér völl í einni elstu atvinnugrein landsins – og er þáttunum ætlað að sýna þann mikla kraft nýsköpunar og margbreytni sem einkennir matvælaframleiðsluna um allt land.

Loks er að geta þriðju þáttaseríunnar af Fjallaskálum Íslands, en eftir sumarið verða sjónvarpsmenn Hringbrautar búnir að heimsækja 18 skála víðs vegar um óbyggðir landsins. Skálarnir sem njóta athyglinnar í sumar eru Baldvinsskáli á Fimmvörðuhálsi, Botnar í Emstrum, Nýidalur undir Sprengisandi, Loðmundarfjörður, Flateyjardalur og Lambi í Glerárdal. Þættirnir eru unnir í samstarfi við Ferðafélag Íslands og Fjallakofann.

Ónefndir eru þá nýir þættir í þáttaröðinni Söfnin á Íslandi, en meðal safna sem verða heimsótt í sumar eru Eldheimar í Eyjum og Berklahælið í Kristnesi í Eyjafirði. Á meðal fyrri þátta úr sömu seríu eru Flugsafnið á Akureyri og Norðurslóðasafnið í Eyjafirði.

Allir fyrrgreindir þættir verða teknir til sýninga á Hringbraut í haust.