Hrím fær á baukinn: Sakað um að nota harm­leikinn á Þing­völlum til að aug­lýsa vöru

Fyrir­tækið Hrím Hönnunar­hús hefur fengið mikla gagn­rýni í Face­book-hópnum Markað­s­nördar eftir að skjá­skoti af Face­book-færslu fyrir­tækisins í gær var dreift á sam­fé­lags­miðlum. Eig­andi Hríms segir að um mann­leg mis­tök hafi verið að ræða.

Í færslunni birtist mynd af björgunar­báti á Þing­valla­vatni þar sem um­fangs­miklar að­gerðir stóðu yfir vegna flug­slyssins síðast­liðinn fimmtu­dag. Eins og kunnugt er voru fjórir voru um borð í lítilli flug­vél sem brot­lenti í vatninu og létust allir sem um borð voru. Björgunar­sveitir og fleiri við­bragðs­aðilar unnu þrek­virki við leitina að vélinni en um var að ræða eina stærstu að­gerð björgunar­sveita hin síðari ár hér á landi.

Í færslu Hríms, sem nú hefur verið eytt, stóð orð­rétt:

„Vonum að leitin fari að skila árangri og nóttin fari vel hjá öllum. Takk elsku björgunar­sveitir landsins fyrir að vera naglar. Takk fyrir fal­lega mynd af Regn­pokanum okkar.“

Það var þessi síðasta setning sem vakti reiði margra og spurði máls­hefjandi í Markað­s­nördum hvort fólki þætti þetta ekki frekar ó­smekk­legt. Hér að neðan má sjá nokkur svör:

„Mjög!“

„Frekar ó­smekk­legt“

„Hvorki tími né staður“
„Já, nei, þetta er ekki við­eig­andi“

„Þetta er sorg­leg aug­lýsing“

Hefur fyrirtækið verið sakað um að notfæra sér þennan mikla harmleik til að auglýsa vöru sína. Tinna Brá Bald­vins­dóttir, eig­andi Hríms, blandaði sér sjálf í um­ræðuna í gær­kvöldi og sagði hún að um mann­leg mis­tök hafi verið að ræða.

„Fengum þessa mynd senda í morgun frá björgunar­sveitinni. Vildum bara þakka fyrir starfið þeirra og óska þeim góðs gengis í leitinni en því miður pó­staðist þetta á röngum tíma og var strax tekið út. Mann­leg mis­tök og vonandi skiljið þið það gerist. Ást og friður og vonandi verður nóttin ykkar góð.“

Það voru ekki allir sem tóku þessa út­skýringu Tinnu góða og gilda. „Það var bara ein­hver sem klúðraði og las virki­lega illa í að­stæður. Segðu það bara í staðinn fyrir að halda fram að þetta hafi verið pó­stað á “röngum tíma” hvað sem það þýðir,“ segir í einni at­huga­semd.