Ökumaður tók sig til í morgun og rúntaði um þess hluta Laugavegarins sem er göngugata. Glöggur netverji birti myndband af akstrinum á samfélagsmiðlinum Twitter. Sjá má myndbandið neðst í fréttinni.
Breytingar á Laugaveginum hafa reynst nokkuð bitbein í umræðunni undanfarin ár. Ýmsir eru himinlifandi með breytingarnar og birti Björn Teitsson, baráttumaður fyrir bíllausum lífsstíl, meðal annars myndir frá ávaxtamarkaði fyrir gangandi vegfarendur á veginum í gær.
Svo virðist vera sem ökumaðurinn í dag hafi hreytt í gangandi vegfarendur að þeir ættu ekki götuna, samkvæmt færslunni á Twitter. „Þessi var hress á morgunrúnti á göngugötunni að hreyta „þú átt ekki götuna“ í vegfaranda,“ segir á Twitter.
Virðist vera sem svo að akstur á göngugötum sé nokkuð tíður. Í september síðastliðnum ræddi Fréttablaðið við Elías Þórsson sem varð fyrir því að ekið var á hann á miðri göngugötu á Laugaveginum.
Þessi var hress á morgunrúnti á göngugötunni að hreyta „þú átt ekki götuna“ í vegfaranda. pic.twitter.com/M04rvnmtNg
— Þórdís Gísladóttir (@thordisg) July 11, 2021