Týr Viðskiptablaðsins er ekki bjartsýnn á að ferðaþjónustan verði fljót að losna úr því hýði sem atvinnugreinin hefur neyðst til að leggjast í vegna heimsfaraldursins.
Fjölmargir starfsmenn í greininni hafi nú þegar misst vinnuna og þúsundir bíði nú milli vonar og ótta.
„Það er ekki við neinn að sakast í því, nema menn vilji bölva kínverskum stjórnvöldum í hálfum hljóðum. Staðan er eftir sem áður sú að öll ferðaþjónusta heimsins liggur meira og minna niðri og fátt sem bendir til þess að samgöngutakmörkunum verði aflétt í bráð,“ skrifar huldupenninn Týr í pistli sínum í Viðskiptablaðinu.
Jafnvel ef svo færi að þeim hindrunum yrði rutt úr vegi fyrir sumarlok sé ekkert sem bendi til þess að fólk fyllist ferðahug.
Bæði hafi stjórnvöld víða um heim byggt sóttvarnir sínar á því að ala á ótta við að fara út fyrir hússins dyr og margir muni hafa takmarkaðar ráðstöfunartekjur til þess að fara í frí á framandi slóðum.
Í ljósi þessa brýnir Týr fyrir stjórnvöldum að ráðstafanir þurfi að mótast af viðleitni við að örva þann hluta atvinnulífsins sem á sér viðreisnar von.
„Ferðaþjónustan er þar tæplega á meðal í bráð og hrein fásinna að ausa fé úr ríkissjóði til þess að halda uppi zombie-atvinnugrein, lifandi dauðri.“