Meistarakokkurinn Hrefna Rósa Sætran hafnaði í fyrsta sæti á sínu fyrsta kraftlyftingamóti um helgina þegar hún gerði sér lítið fyrir og lyfti 270 kílóum samanlegt.
Hrefna Rósa ræðir þetta við Fréttablaðið í dag.
„Ég byrjaði að æfa kraftlyftingar í Covid en hef samt alltaf verið í einhvers konar hreyfingu og æfði íþróttir þegar ég var lítil. Þannig að mér finnst gaman í einhverju svona,“ segir Hrefna í Fréttablaðinu.
Hún hefur æft kraftlyftingar í tvö ár og um helgina endaði hún í 1. sæti í sínum flokki þegar hún lyfti 105 kílóum í hnébeygju, 52,5 kílóum í bekkpressu og 112,5 kílóum í réttstöðulyftu.
Hrefna segir að líkamsrækt sé frábær hreyfing. „Þær eru það nefnilega og manni líður einhvern veginn rosalega vel í líkamanum eftir að hafa verið að lyfta,“ segir hún og bætir við að markmiðið hafi því í byrjun alls ekki verið að keppa.
„Þetta var svona byrjendamót og ég vissi náttúrlega ekkert hvað ég var að fara út í,“ segir hún og tekur fram að hún hafi ekki einu sinni farið á mót sem áhorfandi.
„Þannig að ég bjóst ekkert við því að enda í einhverju sæti. Ég hélt ég væri bara að fara að lyfta einhverju og búið. Þannig að þetta kom skemmtilega á óvart,“ segir hún en nánar er rætt við hana í Fréttablaðinu í dag.