Svo virðist vera sem margir landsmenn hafi lent í vandræðum í bílalúgunni á skyndbitastaðnum KFC, ef marka má ítarlega og langa umræðu um málið inni á Facebook hópnum Matartips.
„KFC bílalúgan og rangar pantanir, hverjir tengja?“ spyr Thelma Rut Sigurðardóttir inni á hópnum. Þar lýsir hún því hvernig hún fékk ranga pöntun í annað skiptið á stuttum tíma hjá skyndibitastaðnum.
Vantaði heila máltíð
Þá var misskilningurinn svo mikill að máltíð eiginmanns hennar var hreinlega ekki til staðar í pokanum frá KFC.
„Ég hringi í KFC og það svarar þar stelpa sem segist geta gefið mér inneign fyrir einni máltíð og ég megi koma og sækja hana.
Það hentaði mjög illa enda vorum við orðin mjög svöng, búin að koma okkur fyrir og næsti KFC staður langt í burtu.
Ég óskaði því eftir einfaldri endurgreiðslu á vörunni sem ég fékk ekki afgreidda og var planið að panta heimsendingu á öðrum mat til að þurfa ekki að ganga í gegnum ómakið að fara aftur.
Mér var tjáð að það væri ekki í boði að fá endurgreiðslu á röngum pöntunum, þó svo að maður hafi ekki fengið það sem maður borgaði fyrir.
Að lokum óskaði ég þá eftir að fá að nýta inneignina strax en að þau þyrftu að bæta okkur þetta upp með því að færa okkur matinn enda hefðum við ekkert tilefni til þess að vinna fyrir þau við það að leiðrétta mistökin þeirra. Fékk einfalda neitun við því og endurtekið við mig að við þyrftum að standa í öllu stappi sem varðar að bæta upp mistökin þeirra og að þau ætluðu að halda peningunum okkar með því að neita endurgreiðslu og neyða okkur í að tapa vörunni eða versla við þau... aftur... “
120 manns lagt orð í belg
Thelma segir að sér þyki þetta óboðleg þjónusta hjá skyndibitastaðnum. Óhætt er að fullyrða að færslan hafi vakið mikla athygli en 120 manns leggja orð í belg. Mjög margir virðast einnig hafa lent í vandræðum í lúgunni á KFC en þó nokkrir segjast aldrei hafa lent í stökustu vandræðum.
„Er aaaaaaaalltaf að fá rangar pantanir úr bílalúgu. Sjúklega þreytandi. Þau svöruðu fyrstu 2 skriftin á Facebook en svo eru þau hætt að svara mér þrátt fyrir að þau opni skilaboðin frá mér,“ skrifar einn.
„Þetta kallast daglegt brauð hjá kfc. þetta gerist í 90% tilfella, alveg magnað dæmi mætti halda að biluð vélmenni gætu gert betur,“ segir annar.
„Þekki þetta því miður vel. Keyri ekki frá lúgunni fyrr en ég er búin að fara yfir það sem ég fæ afhent!“ skrifar sá þriðji.
„Hef marg oft pantað í lúgu hjá kfc í mörg mörg ár og aldrei lent í svona,“ skrifar einn.