„Einangrun er bara pyntingaraðferð og það er alveg búið að vera vitað í mjög langan tíma,“ segir Hrannar Fossberg, fangi á Litla-Hrauni, í samtali við Fréttablaðið í dag.
Blaðið greinir frá nýrri skýrslu Amnesty International sem telur að einangrunarvist í gæsluvarðhaldi sé beitt óhóflega á Íslandi. Alls voru 825 einstaklingar vistaðir í einangrun meðan þeir voru í gæsluvarðhaldi á tímabilinu 2012 til 2021.
Fréttablaðið fjallar ítarlega um málið í dag og ræðir meðal annars við Hrannar sem var í ágúst í fyrra ákærður fyrir tilraun til manndráps og vopnalagabrot. Var hann ákærður fyrir að skjóta tvo einstaklinga í febrúar í fyrra og særa þau. Hann situr í fangelsi sem stendur og afplánar eftirstöðvar dóms sem hann hlaut árið 2018.
Í viðtali við Hrannar kemur fram að hann hafi verið í einangrun í 17 daga í febrúar í fyrra meðan lögregla rannsakaði brot hans. Var hann í einangrun í 23 klukkustundir á dag en átt að fá að fara út. Vegna veðurs reyndist það þó erfitt.
„Þegar ég var í einangrun þá var ekki hægt að fara út því það var svo mikill snjór og þeir vildu ekki moka,“ segir hann.
„Einangrunin er bara til að brjóta fólk niður. Í mínu máli nýtti ég þann rétt til að tjá mig ekki neitt og lögreglan nýtti þá sinn rétt til að hafa hana lengri og lengri, til að skemma mig,“ segir Hrannar sem segir það hafa verið alveg skýrt frá upphafi að hann hefði ekki ætlað að tala.
„En þetta er mannskemmandi. Ef þú ert ekki með sterkan huga fer þetta illa með fólk.“