Hrafn­hildur með opið bréf til Svan­dísar vegna dýra­níðs: „Það er svo mikil skömm af þessu“

„Sæl Svan­dís, ég er að setja mig í sam­band við þig vegna dýra­níðs í Borgar­firði. Þú hefur örugg­lega heyrt af þessu máli í fjöl­miðlum. Steinunn Árna­dóttir benti á þetta og hefur fylgt málinu eftir. MAST gerir ekkert. Lög­reglan og dýra­eftir­lits­maður á svæðinu gerir ekkert,“ skrifar Hrafn­hildur P. Þor­steins, hesta­kona og dýra­vinur á Vísir.is

Há­vær gagn­rýni hefur verið í Borgar­byggð eftir að myndir birtust af hrossum nánast lömuðum af van­­næringu og illri með­­ferð.

„Mál­­leysingjar eiga að geta treyst á að farið sé eftir á­bendingum og reglum fylgt við eftir­­lit og rann­­sókn mála. Mál er varða vel­­ferð þeirra þurfa að vera unnin hratt og vel,“ sagði í bókun byggðar­ráðs Borgar­byggðar í septem­ber.

„Nú er svo komið fyrir þessu stóði að þau standa grind­horuð og veru­lega van­nærð og enga vegin til­búin í veðr­áttuna sem bíður þeirra. Þau höfðu staðið inni í allt sumar og fengu aldrei að fara á græn tún. Ég vil ekki trúa því að heilu og hálfu sam­tökin horfi fram hjá þessu. Skepnurnar þjást á meðan það er verið að dunda sér við að kanna innra eftir­lit hjá Mast,“ heldur Hrafn­hildur á­fram.

Dýra­verndar­­sam­band Ís­lands skoraði á Mat­væla­­stofnun að sinna án tafar lög­bundnum skyldum varðandi vel­­ferð hrossa sem eru í neyð í Borgar­byggð í byrjun síðasta mánaðar.

„Það er svo mikil skömm af þessu. Við komum alls staðar að lokuðum dyrum. Þetta eru um 25 hross sem um ræðir. Ekkert gerist. Nú er svo komið að ég hef sett mig í sam­band við dýra­verndunar­sam­tök í Þýska­land, þau sömu og birtu mynd­böndin af blóð­merunum. Ég hef beðið þau um að bíða með að birta þetta í smá tíma. Það er ömur­legt að þurfa fara þessa leið. Við Steinunn vonumst til að heyra frá þér sem fyrst varðandi þetta mál,“ skrifar Hrafn­hildur að lokum.