Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens var með tæpar 700 þúsund krónur á mánuði á síðasta ári samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra sem lögð var fram í vikunni.
Bubbi hefur um árabil verið einn allra ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, en rétt eins og aðrir fékk hann að finna fyrir afleiðingum heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Tónleikahald lá niðri nokkuð stóran hluta ársins í fyrra en Bubbi er þó í hópi þeirra listamanna sem fá heiðurslaun samkvæmt ákvörðun þingsins.
Eiginkona Bubba, Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, var með öllu hærri laun en Bubbi en hún er markaðs- og gæðastýra Hjallastefnunnar. Laun Hrafnhildar á síðasta ári voru 935 þúsund krónur. Hrafnhildur hefur starfað hjá Hjallastefnunni frá árinu 2019 en þar áður var hún framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu.