Hrafn vonar að áfallateymið sé mætt til Ásgeirs - Sjáðu hversu miklu Íslendingar eyddu í símakosninguna

Samkvæmt því sem Hrafn Jónsson segir í tísti sínu um söngvakeppnina voru ansi margir landsmenn sem kusu sitt atriði í Söngvakeppninni í gær.

Kosninginn er að sjálfssögðu ein stærsta söfnun Ríkisútvarpsins á ári hverju en að hans sögn bárust 260 þúsund atkvæði. Það jafngildir um 44 milljónum íslenskra króna í frjálsum framlögum Íslendinga til RÚV.

Hrafn vonar því að áfallateymi Rauða Krossins veiti seðlabankastjóra aðhlynningu en Ásgeir hefur nánast grátbeðið Íslendinga um að minnka eyðslu sína.