Hrafn Jökulsson, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri, stendur um þessar mundir í stærstu orrustu lífs síns. Hrafn greindist með æxli í hálsi fyrr á þessu ári. Æxlið kallar hann Surtlu og hefur Hrafn háð baráttu á sjúkrahúsi síðustu vikur.
„Töff dans í nótt með Surtlu. Skrölti á fætur með vísu Páls Ólafssonar á vörunum,“ segir Hrafn á Facebook-síðu sinni í morgun en vísa Páls er svohljóðandi:
Nóttin hefur níðst á mér,
nú eru augun þrútin.
Snemma því á fætur fer,
og flýti mér í kútinn.
„Þar sem ég get ekki, því miður, kyngt neinu, læt ég með góðri lyst, duga vatn, appelsín, mix, fanta, kók -- sem ég velti um munninn einsog franskur fagurkeri... og spýti svo.
En Surtla bryður nú járn. Hvítu blóðkornin voru í núlli en þyrpast nú á vígstöðvarnar, sýking og lungnabólga að hjaðna og hverfa og ég hef ekkerrt hitt lækninn sem í fyrradag vildi skutla mér á líknardeild,“ segir Hrafn.
Hann segir að í dag skuli fagnað og ný brögð prófuð gegn „litla skrímslinu“ eins og hann kallar Surtlu – hún hafi boðað allsherjarsigur strax í ágúst, en er nú lúskruð. Hrafn endar færslu sína á góðum hvatningarorðum sem margir geta eflaust tekið til sín.
„Munið, krakkar mínir að gefast aldrei, aldrei upp! Þið sækið styrk til Skaparans og alls hins góða -- og gleðinnar... Hvílík gleði í morgun þegar ég náði að kyngja heilum vatnsdropa -- besti drykkur lífs míns! Nú ætla ég að njóta dagsins -- takk fyrir allar ykkar yndislegu kveðjur. Ég finn kærleikann umvefja mig.
Lesefni dagsins: Páll Ólafsson / Mikael Bulgakov.
Skilaboð til Surtlu: Púha! Láttu þig hverfa, herfa!
FRAM TIL SIGURS -- SAMAN ERUM VIÐ STERKARI.“
Hrafn var í viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins á dögunum þar sem hann ræddi sjúkdóminn og baráttuna við íslenska ríkið.