„Það er ekki siðferðislega tækt að hafa auðlegðarskatt á Íslandi, en það er endalaust hægt að kroppa í almenning. Þetta, eins og allt í pólitík er stéttastríð í grunninn,“ segir Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður og pistlahöfundur, á Twitter-síðu sinni.
Þar gerir Hrafn frétt RÚV frá því í gær að umtalsefni en þá var greint frá því að umhverfisráðuneytið hefði lagst gegn því að skilagjald á einnota umbúðir fyrir drykkjarvörur myndi hækka um 2 krónur.
Ástæðan var sú að það gæti haft neikvæð áhrif á verðbólguþróun. Þess má geta að skilagjald á einnota umbúðum fyrir drykkjarvörur er 18 krónur og hækkaði síðast í mars í fyrra. Óskaði Endurvinnslan eftir því að fá að hækka verðið um áramót í samræmi við verðbólguþróun.
Þetta vakti athygli Hrafns sem lýsti þessu ágætlega á Twitter.
„Við viljum ekki að fátækt fólk sjái of mikinn hag í því að endurvinna, því þau gætu viljað kaupa of mikið af nauðsynjavörum”
„Sir, this is a Umhverfisráðuneyti”
Hrafn bendir á að fyrst og fremst sé um að ræða búbót fyrir viðkvæmustu hópa samfélagsins, fyrir utan að beinlínis hvetja til endurvinnslu.
„Á meðan er þessi sífelldi bænahringur í kringum veiðigjöld, fjármagnstekjuskatt og þjóðkirkjuna. Fuck off.“
Ahh, lof mér að athuga hver er umhverfisráðherra. Einmitt, ég skil. Checks out. pic.twitter.com/h64WMAnclL
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) September 28, 2022