Hrafn og Oddný giftust á Landspítalanum eftir þrjátíu ára aðskilnað: „Mesta ævintýri lífs míns“

Hrafn Jökulsson og Odd­ný Hall­dórs­dóttir giftust á Landspítalanum á dögunum. Í umfjöllun Fréttablaðsins um brúðkaupið segir að þau hafi verið kærustupar á árum áður, og segir Hrafn að eftir þrjátíu ára aðskilnað hafi þau náð aftur saman.

Hrafn greinir sjálfur frá giftingunni á Facebook-síðu sinni, en hann kallar hana „mesta ævintýri lífs“ síns.

„22. ágúst 2022 uppfylltist mesta ævintýri lífs míns. Við Oddný náðum saman aftur eftir 30 ára aðskilnað. Mestu máli skiptir að ég leysti lífsgátuna mína og í sameiningu ætlum við að leiða til lykta lífsgátuna miklu, með gleði, kærleika og sigurvissuna að leiðarljósi. Oddný hefur sýnt mér hvað alvöru hugrekki er. Hún hefur fylgt hjartanu og kom til liðs við mig, kannski síðasta manneskjan á jörðinni sem hafði ástæðu til að leggja mér lið. Ég hef allan tímann leitað að þögla vitninu mínu, leitað að sálufélaga, leitað að stúlkunni sem ég orti til lykilljóðin í mínu lífi.“

Þetta skrifar Hrafn sem bendir á að hann hafi ort ljóð til Oddnýjar á árum áður.

Það var séra Bjarni Karlsson sem gaf þau saman saman, en svaramenn voru Auður Magnúsdóttir og Guðmundur Baldursson.

Hrafn er nú á Landspítalanum að berjast við banvænt æxli, en hann fjallaði um það í helgarviðtali Fréttablaðsins á dögunum.