Hrafn kominn með nóg af sóðaskapnum: „Hættið þessu strax sóðarnir ykkar“ - Sjáðu myndirnar

Rithöfundurinn Hrafn Jökulsson hefur skorið upp herör gegn sóðaskap á götum Reykjavíkur. Frá þessu greinir bróðir hans, fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson, á Facebook síðu sinni en þar segir hann sígarettustubba vera það sem Hrafn sé duglegastur að takast á við.

„Ég hélt satt að segja að hann væri að ýkja það próblem eitthvað, reykingar hafa jú minnkað heilmikið og almenn vitund um hreinlæti í umhverfi okkar aukist, er það ekki? En á leiðinni hina 50 metra frá Skólastrætinu í Krónubúðina á Hallveigarstíg datt mér í hug að rýna niður fyrir fætur mér og svei mér þá, stubbafjöldinn var alveg ótrúlega mikill og harla viðbjóðslegur að sjá. Og ég á heima á þessum götum í þessari borg.“ skrifar Illugi, en hann skorar á reykingafólk að hætta þessum sóðaskap.

„Það er ekki nema eitt að gera: Reykingafólk verður að sætta sig við að sýna samborgurum sínum virðingu og tillitssemi og HÆTTA ÞESSUM VIÐBJÓÐI að henda útreyktum stubbunum frá sér. Hættið þessu strax, sóðarnir ykkar, eða viljiði að ég komi heim til ykkar og hræki á gólfið?“

Sjálfur hefur Hrafn verið duglegur að sýna frá þessum uppátækjum sínum á eigin Facebook-síðu og birt myndir af ruslinu. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar af þessum færslum.