Það eru eflaust margir sem standa í bakstri þessa dagana, enda stutt í jólin. Elín Björg Jónasdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, er í þeim hópi þó baksturinn að þessu sinni hafi verið vegna tólf ára afmælis sonar hennar.
Hlutir eiga það til að gefa sig á ögurstundu og því miður bilaði hrærivélin á sama tíma og Elín var að hræra í lakkrístoppa fyrir soninn. Þá voru góð ráð dýr en eins og sést á meðfylgjandi mynd náði hún að redda sér á ævintýralegan hátt.
Elín Björg birti meðfylgjandi færslu og mynd á Twitter þar sem hún segir að eiginmaðurinn, Daníel Brandur Sigurgeirsson, hafi átt heiðurinn af þessu og verið mjög snöggur að hugsa.
Þegar hrærivelin bilar korter í 12 ára afmæli og afmælisdrengurinn óskar eftir lakkrístoppum. #makita pic.twitter.com/Mlse20dcDO
— Elín Jónasdóttir (@elinbjon) November 30, 2020