Hótar að sniðganga alla landsleiki Íslands ef KSÍ bregst ekki við

Illugi Jökulsson, fjölmiðlamaður og samfélagsrýnir, segir að „vandræðagangurinn“ á heimsmeistaramótinu í Katar sé kominn út yfir allan þjófabálk.

Í morgun bárust fréttir af því að fyrirliðar muni ekki bera regnbogaarmbönd til stuðnings réttindabaráttu hinsegin fólks. Knattspyrnusambönd Englands, Wales, Belgíu, Þýskalands, Danmerkur, Hollands og Sviss tilkynntu þetta í morgun en áður höfðu samböndin sagst vera reiðubúin að greiða sekt ef leikmenn ákváðu að bera böndin.

Látið hefur verið að því liggja að leikmenn gætu fengið frekari refsingu ef þeir bæru böndin, gult spjald og jafnvel rautt. Ákváðu umrædd knattspyrnusambönd því að hlýta þessum reglum.

Illugi gerir málið að umtalsefni á Facebook-síðu sinni en eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum var forysta KSÍ viðstödd opnunarhátíð mótsins í gær. Þá er RÚV einnig með sína fulltrúa á vettvangi en ríkissjónvarpið sýnir leiki mótsins í beinni útsendingu.

„Vandræðagangurinn“ á HM í Katar er kominn út yfir allan þjófabálk. KSÍ hlýtur að kalla allt sitt fólk frá Doha, mótmæla harðlega og neita að taka þátt í starfi FIFA uns það hættir að kúga fótboltamenn sem vilja lýsa yfir stuðningi við réttindabaráttu hinsegin fólks, sem er vitaskuld réttindabarátta okkar allra. Ef KSÍ lætur þetta yfir sig ganga þegjandi og hljóðalaust mun ég aldrei framar mæta á landsleik undir merkjum sambandsins,“ segir Illugi og taka margir undir.

Þorkell Máni Pétursson, fjölmiðlamaður, blandar sér meðal annars í umræðuna og segir það ekki forgangsmál að kalla KSÍ heim þar sem um sérsamband er að ræða.

„En að starfsmenn Rúv séu mættir þarna. Það er að mínu mati alvarlegast í þessu. Þeir eru ríkisstarfsmenn og eru að blessa þessa hátíð.“