Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í gær ákæru yfir manni sem gefið er að sök að hafa ítrekað brotið gegn valdstjórninni, meðal annars með því að hóta lögreglumönnum líkamlegu ofbeldi.
Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins.
Þar segir að hinn ákærði sé fæddur árið 1997 og samkvæmt ákæru á hann að hafa brotið gegn valdstjórninni með því að hafa hótað lögreglumönnum bæði lífláti og líkamsmeiðingum. Atvikið átti sér stað í september 2021.
Í nóvember 2021, tveimur mánuðum síðar, á maðurinn aftur að hafa hótað lögreglumönnum lífláti og líkamsmeiðingum. Þá er honum einnig gefið að sök að hafa skallað lögreglumann í höfuðið með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn hlaut heilahristing, bólgu, roða og eymsli yfir vinstri augabrún.
Um hálfum mánuði síðar á ákærði að hafa komist aftur í kast við lögin. Þá á hann að hafa sparkað í höfuð lögreglumanns með hné sínu með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn hlaut mar á vinstri eyra.
Í janúar 2022 á ákærði enn og aftur að hafa hótað lögreglumönnum lífláti og skallað lögreglumann.
Þess er krafist að sá ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.