Höskuldur Guðmundsson, fyrrverandi leigubílstjóri, furðar sig á því að líkamsleifar ungs manns sem lést af slysförum á Óshlíðarvegi þann 23. september 1973 hafi verið grafnar upp. Þetta er haft eftir Höskuldi á vef Vísis.
Það vakti talsverða athygli í gær þegar Lögreglan á Vestfjörðum tilkynnti að líkamsleifar mannsins hefðu verið grafnar upp. Í tilkynningu lögreglu sagði orðrétt:
„Aðdragandi þessarar aðgerðar er sá að lögreglunni á Vestfjörðum hafði borist ábending um að umrætt slysaatvik hafi ekki verið upplýst nægjanlega á sínum tíma. Þrátt fyrir að langur tími sé liðinn eru taldar líkur á því að hægt sé að upplýsa nánar um tildrög atviksins sem um ræðir.“
Maðurinn sem lést hét Kristinn Haukur Jóhannsson og var hann farþegi í bifreið Höskuldar. Með í bílnum var ung kona og slösuðust hún og Höskuldur lítið. Kristinn kastaðist út úr bifreiðinni, varð undir henni og lést. Aðstandendur hans hafa haft efasemdir um rannsókn málsins og fóru þeir fram á að hún yrði tekin upp að nýju.
Í umfjöllun Vísis í hádeginu kemur fram að bifreiðin hafi verið á leið frá Hnífsdal á Ísafjörð þegar rykkur kom skyndilega á bílinn. Höskuldur sagði við skýrslutöku hjá lögreglu að bíllinn hefði „neglt sig fast í bremsu“ og hann misst stjórn á honum. Bíllinn endaði í flæðarmálinu um 30 metrum fyrir neðan veg og segir Höskuldur að hann og unga konan í bílnum hafi gengið inn í Hnífsdal og gert lögreglu viðart. Þau hefðu leitað að Kristni en ekki fundið hann.
Haft er eftir Höskuldi á vef Vísis að enginn hafi haft samband við hann vegna málsins og þá furðar hann sig á því að það hafi verið tekið upp á nýjan leik, líkt og um glæp hafi verið að ræða.