Höskuldur Jónsson, sem gegndi stöðu forstjóra ÁTVR í tæp tuttugu ár og starfaði einnig sem ráðuneytisstjóri, er látinn. Höskuldur lést á sjúkrahúsi á Kanaríeyjum í kjölfar skurðaðgerðar vegna sýkingar. Hann var 83 ára. Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu í dag.
Höskuldur lauk stúdentsprófi frá MR og námi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hann hóf störf í fjármálaráðuneytinu árið 1965 þar sem hann sinnti ýmsum störfum uns hann var gerður að ráðuneytisstjóra. Hann var svo skipaður forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins árið 1986 þar sem hann leiddi fyrirtækið í gegnum miklar breytingar. Hann lét af störfum árið 2005.
Í umfjöllun Morgunblaðsins í dag kemur einnig fram að Höskuldur hafi einnig sinnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir hið opinbera. Hann var formaður samninganefndar ríkisins í launamálum og var forseti Ferðafélags Íslands á árunum 1984 til 1994.
Höskuldur lætur eftir sig eiginkonu, Guðlaugu Sveinbjörnsdóttur, þrjá uppkomna syni og þrjú barnabörn.