Hringbraut vitnaði fyrr í dag í viðtal Morgunblaðsins við leikarann Pálma Gestsson sem gerði meðal annars garðinn frægan með Spaugstofunni. Þar kom fram að Spaugstofan einbeitti sér að miklu leyti að taka þingmenn og ráðherra fyrir. Flestir tóku því vel fyrir utan einn. Um það sagði Pálmi Gestsson:
„Þó var einn sem var mjög ósáttur við mig. Hann reyndi að fá útvarpsstjóra til að taka þáttinn af dagskrá. Við höfðum heilmikil áhrif og ef út í það er farið heilmikil völd. Þetta var ekki bara eitthvert sprell. Þetta var beitt gagnrýni og það kom fyrir að fólk hringdi í okkur til að klaga einhvern og reyna að fá okkur til að gera ákveðna hluti.“
En hver var þessi ráðherra? Jú, í ævisögu Halldórs Ásgrímssonar, fyrrverandi formanns Framsóknarflokksins, kemur það fram. Ferill Halldórs sem stjórnmálamanns var einn öldudalur og sjaldan sléttur sjór. Halldór sem nú er látinn og var um tíma forsætisráðherra, mátti þola afar neikvæð skrif í fjölmiðlum vegna Íraksstríðsins, síðan fjölmiðlamálsins og að lokum hagsmunatengsla hans við sölu á Búnaðarbankanum. Pálmi Gestsson lék Halldór í Spaugstofunni og þótti Halldóri meðferðin neikvæð. Í ævisögu Halldórs segir:
„Vikulega birtist Pálmi Gestsson leikari á skjánum í gervi Halldórs þar sem hann útmálaði hann sem hálfgerðan þurs, stirðbusalegan og hálfstamandi og seinan til að fatta nokkuð. Þetta var skrumskæling, sem sýndi Halldór í afar neikvæðu ljósi, og virðist hafa farið mjög í taugarnar á honum. Hann sagði í viðtali að sér þætti spýtukarlaleikur Pálma tilkomulítill. Pálmi væri enginn sérfræðingur í sér, hefði aldrei talað við sig og vissi ekkert um sig.“
Í ævisögunni kemur fram að Halldór hafi verið hörundsár og þá segir að það hafi verið mistök hjá Halldóri að tjá sig með þessum hætti eða eins og segir í sögu Halldórs:
„Það bætti gráu ofan á svart.“