Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sakaði í gær umboðsmann barna, Salvör Nordal, um að spila börnum fram til að grafa undan lögvarinni baráttu launafólks. Salvör sendi bréf á Eflingu og sagði börn hafa áhyggjur af fyrirhuguðu verkfalli. Hvatti hún Eflingu til að reyna að semja barnanna vegna. Er Salvör sökuð um það af Sólveigu að reyna að hafa áhrif á fyrirhugað verkfall. Hrafn Jökulsson, rithöfundur og forseti skákfélagsins Hróksins hrósar Sólveigu og líkir henni við Guðmund Jaka en segir hana að þessu sinni skjóta yfir markið með ótrúlegum hætti með yfirlýsingu sinni í gær með því að líta á bréfið sem „freklega árás og verið sé að ,,nota börnin“ svo félagsmenn Eflingar nái ekki fram réttlæti!“
Hrafn heldur áfram:
„Umboðsmaður barna er umboðsmaður barna. Í bréfinu er umboðsmaður barna að koma á framfæri áhyggjum barna af verkföllum sem bætast þá við aðrar þrengingar hálflamaðs skólakerfis.“
Þá bendir Hrafn á að umboðsmaður barna sé að hvetja samninganefndir til að semja líkt og Alma landlæknir hvatti samninganefndir ríkisins og hjúkrunarfræðinga til að semja.
„Túlkun Sólveigar á hinu sjálfsagða erindi umboðsmanns barna er fráleit, og yfirlýsing hennar er einfaldlega full af viljandi mistúlkunum og stóryrðum -- okkur er sagt að umboðsmaður sé að ,,spila börnum fram til að grafa undan lögvarinni baráttu launafólks"!!“ segir Hrafn og bætir við:
„Viðbrögðin láta auðvitað ekki á sér standa, og eftir höfðinu dansa limirnir: Á Facebook-síðu formanns Eflingar er nú ausið óhróðri yfir umboðsmann barna -- sem gegnir einhverju mikilvægasta embætti landsins á vorum dauðans óvissu tímum.“
Hrafn segir það hörmulegan dómgreindarbrest að útmála Salvöru sem óvin. Þá sé mikilvægt að Sólveig Anna, aðrir verkalýðsforkólfar, atvinnurekendur, sveitarfélög og foreldrafélög sameinist um ræða grafalvarlega stöðu þúsunda barna í kófinu sem og ákveða aðgerðir sem bæta lífsgæði þeirra. Þá sé mikilvægt að koma þeim börnum til tafarlausrar hjálpar sem kunna að vera vanrækt eða beinlínis í háska stödd. Hrafn segir að lokum:
„Og meðal annarra orða: Ég heyri sárafáa valdamenn -- og valdamenn sitja hreint ekki bara á þingi -- tala af þekkingu, sannfæringu og eldmóði um börnin okkar á tímum kórónaveirunnar. Það ætti að vera brýnasta úrlausnarefni dagsins.“