Hörkusamkeppni í ruslinu - atvinnugrein sem veltir hátt í 25 milljörðum króna

Gunnar Bragason, forstjóri Terra, er gestur Jóns G. í kvöld. Gunnar hefur yfirgripsmikla þekkingu á umhverfismálum, sorphirðu og flokkun úrgangs. Samkeppnin er mikil í þessari sívaxandi atvinnugrein hér á landi sem veltir á milli 20 til 25 milljörðum króna á ári. Um tíu fyrirtæki eru á markaðnum og það er einfaldlega bissness í ruslinu.

Terra tók nýlega magnað tæki í notkun; svonefndan flokkara, sem leysir mannshöndina að stórum hluta af hólmi við að flokka endurvinnanlegan úrgang fyrir stóru endurvinnslustöðvarnar erlendis.

Það eru stórstígar framfarir í þessari atvinnugrein þar sem einstaklingar, fyrirtæki og sveitarfélög taka þessi mál alvarlega sem hluta af umhverfisstefnu sinni. Á aðra milljón tonn af úrgangi fellur til hér á landi árlega.

Terra er eitt af stóru fyrirtækjunum í atvinnugreininni, með yfir 300 manns í vinnu og veltir um 6 milljörðum króna á ári.