Herdís Hjörleifsdóttir horfði á eftir sextíu þúsund krónum fjúka upp í loft í gær. Um var að ræða fermingargjöf til barnabarnsins en Herdís ræðir málið við Fréttablaðið.
„Við tókum ákvörðun um að setja peningagjöfina ekki bara í umslag heldur í fallega helíum blöðru,“ skrifar Herdís í færslu á Facebook.
„Á planinu í Faxafeni ákvað blaðran að koma sér út úr bílnum, skaust upp í himinhvolfið á ógnarhraða og eins og leið lá í átt að Ártúnsbrekkunni,“ skrifar Herdís.
„Ef svo ólíklega vill til að einhver hittir blöðru með 60 þúsund krónum í þá væri nú alveg gaman að heilsa uppá blöðruna aftur.“
Viðtal Fréttablaðsins við Herdísi.