Hörður Torfa varar við sjálfs­af­greiðslu­vélunum: „Eins gott að mér lá ekki mikið á“

Söngvaskáldið Hörður Torfason vill vara við nýrri hættu við sjálfsafgreiðslukerfi matvöruverslana eftir að hafa sjálfur orðið fyrir barðinu á því. Hann segir frá þessu á Facebook.

„Fyrir nokkru var ég að kaupa örfáar vörur og þurfti að borgar fyrir þær með nýju greiðslutækninni. Skannaði mínar fáu vörur og setti í bakpokann brá kortinu yfir skannann, tók kvittunina og fór yfir hana á meðan ég gekk út. Fannst verð ískyggilega hátt og sá að ég var að borga fyrir ýmislegt sem ég hafði ekki verslað!“ skrifar Hörður.

Málið reddaðist þó blessunarlega:

„Gekk inn aftur og ræddi við þægilega unga stúlku sem fór yfir stöðuna með mér og endurgreiddi mér kr. 5.211. Hún sagði mér að þetta kæmi stundum fyrir að fólk skannaði inn vörur en gengi síðan út án þess að borga og þannig lenti kostnaðurinn á þeim næsta. - Eins gott að mér lá ekki mikið á og tók með mér kvittunina“

Það er betra að fólk hafi nú augun opin og verði með athyglina í lagi þegar það notast við sjálfsafgreiðslukassana svo það sé ekki að borga fyrir vörur annarra líka.

Mig langar til að vekja athygli fólks á nýrri hættu við sjálfsafgreiðslukerfi verslanna. Fyrir nokkru var ég að kaupa...

Posted by Hörður Torfason on Saturday, 24 April 2021