Hörður tjáði sig um Auðunn og fékk hörð viðbrögð: „Frekar mikið sjúkt“

Söngvaskáldið og baráttumaðurinn Hörður Torfason hrósar umdeildu viðtali við tónlistarmanninn Auðunn Lúthersson, sem er betur þekktur sem Auður, í færslu á Facebook í dag.

Viðtalinu var sjónvarpað á Stöð 2 í síðustu viku, en í því opnaði Auðunn sig um ásakanir sér á hendur er varða kynferðisbrot. Hann játaði að hafa farið yfir mörk og verið óþægilegur í einhverjum tilfellum, og vildi taka ábyrgð á þeirri hegðun, en þá sagði hann jafnframt að til væru sögur um sig sem væru hreinn og klár uppspuni.

Hörður hvetur fólk til að hlusta á viðtalið og fullyrðir að Auðunn sé bæði framúrskarandi tónlistarmaður og fyrirmynd.

„Aðdáunar og virðingarvert uppgjör. Ég hvet fólk til að hlusta vel á þetta einstaka og ærlega viðtal við Auðunn Lúthersson og þakka honum fyrir og þar með hvetja hann til áframhaldandi starfa. Auðunn er frábær fyrirmynd og stórkostlegur tónlistarmaður. Áfram Auðunn!“ skrifar Hörður.

Færsla Harðar hefur vakið talsverða athygli og margir hafa brugðist við henni. Ljóst er að ekki eru allir á sama máli um viðtalið, en margir gagnrýna skoðun Harðar.

„Það að hampa og kalla svona einstaklinga fyrirmyndir er virkilega ljótt og er þvílík óvirðing við fórnarlömb ofbeldisins af hans hálfu. Það er bara lágmarks krafa að hann beri ábyrgð á sínum gjörðum og biðjist afsökunar, það er enginn hetjuskapur!“ er til að mynda skrifað í ummæli undir færslu hans. Og annar einstaklingur skrifar:

„Frábær fyrirmynd? Hvernig í ósköpunum er það frábær fyrirmynd að beita ofbeldi? Auðvitað er betra að gangast við ofbeldinu en að gera það ekki, en það breytir því ekki að hann beitti ofbeldi, og að setja hann á stall og telja hann fyrirmynd bara því hann viðurkennir brot er frekar mikið sjúkt.“