Hópur réðst á par í Mos­fells­bæ í gær­kvöldi – Of­beldis­mál á borði lög­reglu

Of­beldis­mál komu nokkuð við sögu hjá lög­reglunni á höfuð­borgar­svæðinu í gær­kvöldi.

Klukkan 21:30 var til­kynnt um líkams­á­rás í Mos­fells­bæ en þar höfðu þrír menn og ein kona ráðist á par og veitt því á­verka. Að sögn lög­reglu voru upp­tökin ein­hverjar deilur sem fólkið átti í en á­rása­r­aðilar voru farnir af vett­vangi þegar lög­reglu bar að garði.

Þeir eru einnig grunaðir um hótanir, eigna­spjöll og rán. Að sögn lög­reglu er málið í rann­sókn og er ekki vitað nánar um meiðsl þeirra sem fyrir á­rásinni urðu.

Annað of­beldis­mál kom inn á borð lög­reglu um hálf tólf leytið í gær­kvöldi. Fjórir menn voru hand­teknir í Hlíðunum, grunaðir um líkams­á­rás. Þeir voru allir ölvaðir og voru þeir vistaðir í fanga­geymslu vegna rann­sóknar málsins.

Flytja þurfti einn mannanna til að­hlynningar á slysa­deild en sá var sleginn í and­litið með flösku eða glasi. Saumuð voru sex spor í and­lit mannsins en að því loknu var hann færður í fanga­geymslu.