Svo virðist sem dularfullur einstaklingur, eða einstaklingar, herji nú á alþjóðlegan bókabransa og er sá íslenski engin undantekning í þeim efnum. Viðkomandi hefur ítrekað villt á sér heimildir og blekkt rithöfunda, forleggjara og þýðendur til að láta af hendi óútgefin handrit.
Ítarlega er fjallað um þetta óvenjulega mál í Fréttablaðinu í dag og fjallar forsíðufrétt blaðsins meðal annars um málið.
Meðal þeirra sem hafa lent í þjófnum, eða fengið skilaboð frá honum, er Hildur Knútsdóttir rithöfundur en nýjasta bók hennar kom út í vikunni. Um síðustu helgi fékk hún tölvupóst frá, að því er virtist Tone Myklebost, sem er mikilsvirtur norskur þýðandi, og óskaði hann eftir því að fá að lesa pdf-útgáfu af handriti hennar.
„Ég fékk sem sagt bara tölvupóst á laugardagskvöldið frá Tone, að ég hélt. Ég hef alveg verið vöruð við þessu,“ sagði Hildur sem hafði varann á eftir að hafa heyrt af máli rithöfundarins Björns Halldórssonar. Ræddi hún við Valgerði Benediktsdóttur hjá réttindastofunni á Forlaginu áður en hún svaraði hinum meinta þýðanda.
Í fréttaskýringu Fréttablaðsins er einnig rætt við Hólmfríði Úu Matthíasdóttur, sem lenti í því miður skemmtilega atviki í vikunni þegar hún fékk senda hótun frá bókaþjóf. Í frétt blaðsins kemur fram að þjófurinn hafi villt á sér heimildir og sent Úu tölvupóst í nafni Tone Myklebost. Var hún beðin um að senda pdf útgáfu skáldsögunnar Olíu eftir Svikaskáld, sem kom út nú á dögunum.
„Ég sá strax að þetta var þessi svindlari sem við vorum að tala um, í fyrsta lagi vegna þess að ég var náttúrlega meðvituð um að þetta var í gangi en svo sá ég líka netfangið. Svo er það bara þannig að þessi norski þýðandi, þó ég hafi verið í sambandi við hana, þá er það ekki þannig að hún sé skrifa mér og biðja mig um handrit,“ segir hún.
Úa sendi bókaþjófnum því póst um hæl og spurði hvort hann myndi ekki vilja ræða málin við Silviu Cosimini, ítalskan þýðanda sem hann hefur áður þóst vera, og lét fylgja með falskt netfang í nafni Silviu sem þjófurinn notaði.
„Með þessu var ég að segja ‚Við sjáum í gegnum þig.‘ Þá brást viðkomandi ókvæða við og sendi mér skilaboð þar sem hann segir ‚Hæ! Einn daginn kem ég til þín. Ég veit hvar þú býrð‘.“
Þrátt fyrir að Úa hafi áður þurft að verjast ásókn bókaþjófsins þá lýsir hún atvikinu sem fremur óþægilegu og ákvað hún, að hvatningu samstarfsfólks síns, að tilkynna málið til lögreglu.
Hér má lesa fréttaskýringu Fréttablaðsins í heild sinni.