Högni Egilsson tónlistarmaður segir fordóma og skilningsleysi ríkja um geðhvörf. Hann ræddi þetta í tengslum við Kanye West í hlaðvarpinu Skoðanabræður, sem bræðurnir Snorri og Bergþór Massynir halda úti, síðasta föstudag og rifjaði það um leið upp þegar hann fór sjálfur fyrst inn á geðdeild.
„Hann er náttúrulega með bipolar. Ég kljáist við það á hverjum einasta degi af vandvirkni. Það lærist með aldrinum að gera það. Traustið verður að vera til heilbrigðisstofnananna, lækna og svoleiðis. Það er erfiðast í heimi fyrst, eins og hann er að tala um að það sé verið að læsa hann inni á geðdeild. Það er ógeðslega erfitt skref að fara inn á geðdeild, fyrir hvern sem er,“ sagði Högni.
Þurfti að snertast við engla
Högni greindist sjálfur með geðhvörf fyrir átta árum en er að eigin sögn kominn á stöðugan stað. „Með árunum minnka sveiflurnar. Þetta snýst allt um sveiflur. Að taka lyfin sín sómasamlega, halda sig frá örvandi efnum og svolítið vera æðrulaus gagnvart því að þú ert með sjúkdóminn. Það sem ég held að Kanye sé ekki er æðrulaus gagnvart því að hann sé með þetta. Þegar manían fer svona hátt þá er hann bara: „Þið eruð að reyna að taka mig niður. Ég er engill. Ég er guðleg vera.““ segir Högni.
„Það er þessi leiðinlega hlið af sjúkdómnum, sem er kross að bera en er líka minn brunnur af einhverju tilfinningalífi sem ég myndi aldrei snerta á öðruvísi.“
Hann rifjar þá upp þegar hann fór sjálfur inn á geðdeild í fyrsta skipti. „Ég man eftir því fyrst þegar ég fór inn á geðdeild - þá þurfti ég að halda tónleika inni á Snaps og ég þurfti að hlaupa á móti Reykjavíkurmaraþoninu, af því að ég þurfti að búa til einhverja táknræna aðgerð og snertast við engla. Þú ferð inn í einhvern dulrænan heim sem er eiginlega ekki hægt að lýsa með orðum af því að þetta eru svo kraftmiklar upplifanir.“
Hann segir þá að ekki eigi að upphefja geðsjúkdóma í tengslum við listir og listamenn: „Það hjálpar þér ekkert að fara inn á geðdeild fimm sinnum í músíkinni. Það sem hjálpar þér er að læra að vera stabíll, að vera góður við umhverfið þitt. Það er ekkert endilega rómantískt að halda að geðveiki listamaðurinn sé besti listamaðurinn. Það er alls ekki þannig,“ sagði hann.
Högni telur þá Kim Kardashian, eiginkonu Kanye, bregðast rétt við ástandi eiginmanns síns: „Af því að það eru líka svo miklir fordómar og skilningsleysi, enda líka frekar flókið fyrirbæri, af því að allt í einu heldur Kanye West að hann sé Yeezy eða Guð en síðan fer hann örugglega djúpt í þunglyndi.“