Höfum tæki og tól eftir efnahagshrunið

Útbreiðsla Covid-19 veirunnar hefur víðtæk samfélagsleg og efnahagsleg áhrif um allan heim – og hér ekki síður en annars staðar. Augljósasta höggið er á ferðaþjónustuna en auðvitað eru áhrifin mun víðtækari og óvissan gríðarleg.

Hjá Lindu Blöndal í þættinum 21 ræddu þau þetta: Willum Þór Þórsson, framsókn, formaður fjárlaganefndar Alþingis, Þorsteinn Víglundsson, Viðreisn sem situr í sömu nefnd og Oddný G. Harðardóttir Samfylkingu sem er í efnahags-og viðskiptanefnd ásamt Þorsteini.

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í dag eru ræddar: Til dæmis greiðslufrestst á sköttum fyrir fyrirtæki og niðurfelling tímabundið á gistináttagjaldi.